Sogaðist inn í svarthol
![]() Myndin sýnir svartholið hans Einars og rauða örin bendir á staðinn þar sem talið er að hann hafi lent | Einar Guðmundsson, eðlisfræðiprófessor við Háskóla Íslands varð fyrir því óláni í fyrradag að sogast inn í svarthol sem opnaðist óvart er hann var að sýna nemendum sínum "dulítið sniðugt" eins og hann orðaði það. Talið er að Einar hafi í kjölfarið endað á plánetunni xT78 í sólkerfinu GAP-809 sem staðsett er í 16 milljón ljósára fjarlægð frá jörðu. |
Að sögn eins nemanda hans var Einar að skjóta PT-geisla úr afleiddri rafgasforþjöppu inn í kjarna Sesíum eindar sem geisluð var með segluðum öreindaþétti, þegar jónadrifið í óm-magnaranum gaf sig með þeim afleiðingum að Einar sogaðist inn í svarthol er myndaðist skyndilega. Fyrirhugað er að senda þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-Líf á vettvang til að leita Einars. |

<< Til baka